Seinni bólusetning barna á Norðurlandi

Seinni bólusetning barna á Norðurlandi

Í þessari viku verður börnum á aldrinum 12-15 ára sem komu 26. ágúst og fyrr boðið að koma í seinni bólusetningu á Norðurlandi. Forráðamaður skal fylgja barni og boð verða send út með sms og/eða í gegnum Heilsuvera.is. Seinni bólusetningar munu einnig fara fram hjá fullorðnum sem fengu bólusetningu 26. ágúst og fyrr.

Bólusettum einstaklingum 60 ára og eldri býðst viðbótarskammtur á næstu vikum. Hjá þeim sem eru 70 ára og eldri þurfa að líða að lágmarki 3 mánuðir frá seinni bólusetningu en 6 mánuðir hjá öðrum. Bólusett verður með bóluefni frá Pfizer, óháð því bóluefni sem notað var við grunnbólusetningu. 

„Við biðjum aðstandendur að fylgjast með sms boðum sem koma í síma ættingja er varðar dagsetningu og tímasetningu. Þeir sem ekki hafa hafið bólusetningar er velkomið að koma á auglýstum opnunartíma á Akureyri.  Ekki er þörf á að hafa strikamerki með í för, bara mæta á staðinn. Á öðrum starfsstöðvum skal hafa samband við heilsugæslu og panta tíma,“ segir í tilkynningu HSN.

Bólusetningar 14. – 17. september Akureyri

Á Slökkvistöðinni á Akureyri fimmtudaginn 16. september kl: 13-16. 

Þeir sem eru 60 ára og eldri og falla innan þeirra tímamarka sem nefnd eru hér fyrir ofan eru velkomið að koma á opnunartíma þó ekki hafi borist boð.

Bólusetningar barna 12-15 ára. Send verða út sms boð sem líklega koma í síma foreldra og/eða í gegnum Heilsuveru.is.  Ef tíminn hentar ekki þá má koma milli kl: 13-16 og á þetta einnig við um þá sem ekki fá boð.

Þeim börnum sem ekki hafa komist hingað til er velkomið að koma og fá bólusetningu.

Bólusetningar á öðrum starfstöðvum

Boð verða send út með sms skilaboðum þar sem tímasetning og staður kemur fram. 

Bólusetningar barna 12-15 ára. Send verða út sms boð sem ættu að koma í síma foreldra. Vinsamlegast hafið samband við ykkar heilsugæslustöð ef boð vantar.

Þeir sem ekki hafa hafið bólusetningar eða ekki getað komist í boðaða tíma skulu hafa samband við sína heilsugæslustöð til að fá nýjan tíma.

UMMÆLI

Sambíó