Sekt fyrir að leggja ólöglega á Akureyri hækkar

Sekt fyrir að leggja ólöglega á Akureyri hækkar

Bæjarstjórn Akureyrar hefur samþykkt breytingu á gjaldskrá bifreiðastæðasjóðs sem felur í sér að gjöld vegna stöðubrota, þegar ökutækjum er lagt ólöglega, verði hækkuð. Breytingin tekur gildi 1. júlí næstkomandi en þá verða gjöldin hækkuð úr 11.000 krónum í 20.000 krónur. Þetta kemur fram á vef bæjarins.

Þar segir að þetta sé hluti af átaki sveitarfélagsins til að koma í veg fyrir að bifreiðum sé lagt ólöglega. Jafnframt á að leggja aukna áherslu á að upplýsa ökumenn um þær reglur sem gilda þannig að auðveldara sé að fylgja þeim og komast hjá sektum. Með þessari hækkun eru gjöldin í samræmi við sektir sem lögreglan leggur á fyrir sams konar brot.

Breytingin á við um almenn stöðubrot. Gjöld vegna „klukkubrota“ eru óbreytt. Klukkubrot er það þegar ökumenn leggja í þar til gerð merkt stæði í miðbænum og nágrenni hans án þess að stilla sýnilega bílastæðaklukku eða ef ökutæki er of lengi í slíkum stæðum og leyfilegur stöðutími rennur út.

Undir almenn stöðubrot fellur til dæmis að leggja ökutækjum:

  • Á gangstétt
  • Á móti umferð
  • Á/við gangbraut
  • Í snúningshaus botnlangagötu
  • Þar sem umferðarmerki gefa til kynna að það sé bannað

Auk þess er stöðubrot að leggja bifreiðum í stæði fyrir fatlað fólk ef viðkomandi hefur ekki P-merki.  

Hins vegar er heimilt að leggja bifreiðum í almenn bílastæði og samhliða umferð, hægra megin, við ystu brún götu og við hliðina á gangstéttum. 

Hvers vegna skiptir þetta máli? 

Það er allra hagur að umferðin gangi sem best og að ökutækjum sé ekki lagt þar sem þau geta valdið hættu eða óþægindum. 

Stefna Akureyrarbæjar er að fjölga þeim sem nota virka og umhverfisvæna ferðamáta og almennt njóta gangandi vegfarendur forgangs. Þeirra á meðal eru oft börn sem eru að stíga sín fyrstu skref í umferðinni en líka eldra fólk og aðrir sem eiga ekki að þurfa að fara út á götu til að komast leiðar sinnar.

Mikilvægt er að allir geti átt greiða leið um gangstéttir og stíga bæjarins án hindrana.

Á vef bæjarins má finna frekari upplýsingar og myndefni sem útlistar nánar hvað má og hvað má ekki. Smelltu hér.


UMMÆLI