Intersand MaxCare 12 kg | Gæludýr.is

Selur litrík listaverk og styrkir börn í Gvatemala

Selur litrík listaverk og styrkir börn í Gvatemala

Akureyrski fjöllistamaðurinn Stefán Elí opnaði nýlega málverkasýningu í hjarta Reykjavíkurborgar. Listaverkin hans Stefáns eru litrík og lifandi og eru innblásin af ferðalögum Stefáns um heiminn.

„Ferðalög mín um þennan heim og um heima handan veita mér mikinn innblástur. Ég ferðaðist mikið á síðasta ári og eyddi meðal annars 3 mánuðum í Mexíkó og bjó í 6 mánuði í Gvatemala. Minn ásetningur er að ýta undir aukna meðvitund, sköpun, gleði, kærleik og ást í gegnum mína list og að hvetja fólk til að lifa lífinu til fulls.“

Verkin eru til sýnis á Mama Reykjavík sem er yndislegur vegan veitinga- og viðburðastaður staðsettur á horninu þar sem Laugarvegur og Skólavörðustígur mætast við upphaf regnbogans.

„Viðtökurnar hafa verið alveg hreint dásamlegar og ég er innilega þakklátur öllum þeim sem hafa gefið sér tíma til þess að upplifa verkin mín. Það er yndislegt að fá að deila minni sköpun með heiminum og það gleður mig innilega að heyra hversu góð áhrif mín list hefur á fólk.”

Stefán Elí gefur 22% alls ágóða frá sölu málverkana til styrktar Maya fjölskyldna og barna við vatnið Atitlán í Gvatemala. Peningurinn fer í að kaupa myndlistabúnað, hljóðfæri og tónlistarbúnað.

„Ég vinn í samstarfi við góðgerðarsamtökin EYEAMU. Samtökin starfa í Gvatemala og styðja við fólkið þar á ýmsa vegu. Nýlega safnaðist peningur í gegnum sölu myndlistar til þess að byggja hús handa 7 barna fjölskyldu, kaupa eldavélar handa 17 fjölskyldum og færa 150 börnum þorpana nýja skó og sokka.”

20% ágóða rennur beint til Mama Reykjavík. Mama þjónar mikilvægu hlutverki í lífi margra í borginni og tengir saman skapandi fólk úr öllum áttum. Mama býður reglulega upp á kakó athafnir, tónlistarviðburði, listasýningar og ýmislegt fleira. Mama er frábær staður til þess að njóta hágæða (og hátíðni) matar og félagskaps.

Stefán Elí hvetur alla, unga sem aldraða, til þess að koma og upplifa myndlistina. Sýningin verður uppi út Ágúst svo það er enn nógur tími til þess að koma og njóta.  

Hér er myndband frá opnun sýningarinnar ásamt tónlist sem Stefán Elí semur og tekur upp.

Sambíó

UMMÆLI