Origo Akureyri

Sendiherra Þýskalands opnaði sýningu á Íslandskortum

Sendiherra Þýskalands opnaði sýningu á Íslandskortum

Sendiherra Þýskalands, Clarissa Duvigneau, opnaði sýninguna Einstök Íslandskort 1535-1849 – Schulte landakortin á Minjasafninu á Akureyri í síðustu viku. Á sýningunni gefur að líta 43 stór og smá Íslandskort helstu kortagerðarmanna Evrópu frá árunum 1535-1847. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar.

Á vef bæjarins segir um sýninguna:

Elstu kortin sýna óljósar útlínur sem oft byggjast á vafasömum upplýsingum, jafnvel hreinum lygasögum og fölsunum. Þar má einnig sjá ævintýraeyjar og furðudýr. Þegar fram líða stundir verða útlínur landsins kunnuglegri með vaxandi þekkingu byggðri á vísindaleiðöngrum á vegum evrópskra konunga á norðlægar slóðir eða leit að siglingaleiðum til austurlanda.

Kortin eru einstök og jafnvel ekki að finna í öðru eintaki í heiminum svo vitað sé. Stór hluti kortasafnsins sem telur 187 kort, er hvorki að finna í íslenskum né erlendum landakortasöfnum eða 51 kort. Þá er þetta gullið tækifærið til að sjá slík kort því Minjasafnið á Akureyri er eini staðurinn þar sem árlega er hægt að skoða þessi fallegu og sögulegu kort.

Íslandskortin eru samofin ástarsögu gefendanna, þýskra hjóna, dr. Karl-Werner Schulte og dr. Giselu Schulte-Daxbök, sem tóku að safna Íslandskortum fljótlega eftir að ástin kviknaði milli þeirra á 7. áratugnum. Í fyrstu átti þetta að vera eitt kort til að skreyta heimilið og halda tengslum við Ísland og Akureyri þangað sem brúðkaupsferðalagið hafði leitt þau. Veggir heimilisins fylltust smátt og smátt af sögulegum landakortum af Íslandi.

Árið 2014 gáfu Schulte hjónin íbúum Akureyrar kortin 76 sem prýddu heimilið en eftir fráfall Giselu hefur Karl-Werner aukið við safnið í hennar nafni. Á sýningunni gefur að líta úrvalskort úr safninu ásamt nýjustu 10 kortunum sem Karl-Werner afhenti Minjasafninu til eignar og varðveislu í gær. Þessi kort eru jafnframt þau elstu í safninu eða frá árunum 1535-1597.

Sýningin stendur til 6. október og er hluti af Listasumri á Akureyri.

Mynd: Elísabet Ögn Jóhannsdóttir.

Netsprengja NTC

UMMÆLI