Origo Akureyri

Sérfræðingar á heimsvísu funda með heimafólki á Norðausturlandi til að ræða aðgerðir til verndar Atlantshafslaxinum

Sérfræðingar á heimsvísu funda með heimafólki á Norðausturlandi til að ræða aðgerðir til verndar Atlantshafslaxinum

Six Rivers Iceland, náttúruverndarsamtök stofnuð af Sir Jim Ratcliffe, stofnanda og stjórnarformanni INEOS, standa 31. maí næstkomandi fyrir árlegri alþjóðlegri ráðstefnu sinni um stöðu og aðgerðir til verndar Atlantshafslaxinum.

Ráðstefnan, sem er sú fjórða í röðinni og hefur til þessa verið haldin í Reykjavík, fer nú í fyrsta sinn fram á Vopnafirði. Verður þar fjallað um verndaraðgerðir á Íslandi í alþjóðlegu ljósi.

Á ráðstefnunni koma saman allir helstu hagaðilar, bæði heimamenn og aðrir innanlands auk fremstu laxasérfræðinga frá Íslandi, Noregi og Bretlandi.

Fjallað verður um hnignun laxastofnsins hvarvetna við Norður-Atlantshaf, en stærð stofnsins er komin niður í fjórðung af því sem var á áttunda áratugnum. Horft verður til aðgerða Six Rivers Iceland til að vernda og styðja við afkomu laxins hér í ljósi þessarar alþjóðlegu hnignunar og nýrra þátta sem ógna afkomu stofnsins – með áherslu á fyrirliggjandi verkefni um að bjarga laxinum frá brún útrýmingar.

Af umfjöllunarefnum má nefna: „Spegla íslenskir laxastofnar hnignunina á heimsvísu?“, „Verndun sem nær yfir vatnasvið hjá Six Rivers Iceland og í Norðvestur-Skotlandi“ og „Hver er reynsla Norðmanna af nýjum hættum sem að villta laxinum steðja, frá sjókvíaeldi og hnúðlaxi?“.

Á meðal þeirra sem til máls taka eru leiðandi sérfræðingar frá Hafrannsóknastofnun, Norsku náttúrufræðistofnuninni (NINA), Norska vísinda- og tækniháskólanum (NTNU), og umhverfissamtökunum Atlantic Salmon Trust, auk fremstu sérfræðinga Six Rivers Iceland.

Sir Jim Ratcliffe, stofnandi og stjórnarformaður INEOS, hefur um árabil verið einn öflugasti bakhjarl verndunar laxa á Íslandi, en hann stofnaði til verndarstarfs Six Rivers Iceland árið 2019.

Sir Jim Ratcliffe, stofnandi og stjórnarformaður INEOS:

„Tilvist Atlantshafslaxins er ógnað. Með því að leiða saman fremstu sérfræðinga heims á sviði verndunar sem vinna að sama marki ætlum við að deila þekkingu og úrræðum til að grípa inn í hnignun laxins áður en það verður um seinan. Six Rivers Iceland var stofnað með það í huga að vinnan myndi halda áfram árum saman með áframhaldandi samstarfi – en meira þarf til að koma.“

Six Rivers Iceland leggur áherslu á verndun bæði lands og vistkerfis nokkurra áa Norðurausturlands og að styðja viðgang laxastofna þeirra. Verkefnið er metnaðarfullt að umfangi og felur í sér umtalsverða fjárfestingu bæði í beinum verndaraðgerðum og langtímarannsóknum svo staðinn verði vörður um eitt af síðustu svæðunum þar sem Atlantshafslaxinn dafnar.

Vonir vísindamanna sem vinna að verndarverkefni Six Rivers Iceland standa til þess að uppgötva hvernig styðja má við og efla stofn Atlantshafslaxins. Starfið á Norðausturlandi fer fram í óspilltum ám svæðisins, en bæði árnar og vatnasvæði þeirra eru þannig frá náttúrunnar hendi að það auðveldar rannsóknir á laxinum. Lærdómur sem dreginn er af rannsóknum hér styður svo við aðgerðir til að snúa við heildarhnignun laxastofnsins í heiminum. Þekkingu héðan er deilt víðar og kemur að gagni heim allan.

Öll vinna verndarstarfsins fer fram í nánu samstarfi við bændur og nærsamfélagið.

Starfsemi Six Rivers Iceland er fjármögnuð beint af Sir Jim Ratcliffe auk tekna af einstakri stangveiðiupplifun, þar sem reglan er að öllum veiddum fiski er sleppt aftur.

Gísli Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Six Rivers Iceland:

„Six Rivers Iceland er langtímaverkefni sem ætlað er að hafa til framtíðar jákvæð áhrif á bæði svæði og samfélag. Vinnan hefur farið vel af stað en vitanlega er mun meira sem gera þarf. Okkar von er því að stjórnvöld víðast hvar bregðist við þeim ógnunum sem að laxinum steðja og leggist á árar með okkur.“

*Ekki er eingöngu horft til ánna og nærumhverfis þeirra heldur alls vatnasviðs þeirra.

Fyrir frekari upplýsingar um verkefni Six Rivers Iceland er að finna hér: http://thesixriversfoundation.com/iceland/  

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó