Sex Akureyringar verðlaunaðir á lokahófi HSÍ

Martha Hermannsdóttir

Lokahóf Handknattleikssambands Íslands fór fram í gærkvöldi og voru þau sem þóttu skara fram úr í vetur verðlaunuð. KA/Þór hreppti tvö verðlaun og fleiri Akureyringar voru verðlaunaðir.

Martha Hermannsdóttir var besti leikmaður 1.deildar kvenna en hún var í algjöru lykilhlutverki hjá KA/Þór sem hafnaði í 2.sæti deildarkeppninnar og tapaði í úrslitaeinvígi um sæti í efstu deild. Jónatan Þór Magnússon, þjálfari liðsins, var valinn besti þjálfari deildarinnar.

Besta dómarapar landsins kemur frá Akureyri en það eru þeir félagar Heimir Örn Árnason og Sigurður Hjörtur Þrastarson.

Þá voru tveir Akureyringar til viðbótar verðlaunaðir en það voru þeir Sveinbjörn Pétursson, besti markvörður Olís-deildarinnar sem leikur fyrir Stjörnuna og Arnar Gunnarsson, besti þjálfari 1.deildar karla en hann stýrði Fjölnis til sigurs þar.

Hér að neðan má sjá yfirlit yfir alla verðlaunahafa kvöldsins.

Háttvísiverðlaun HDSÍ kvenna 2017
Laufey Ásta Guðmundsdóttir – Grótta

Háttvísiverðlaun HDSÍ karla 2017
Andri Þór Helgason – Fram

Unglingabikar HSÍ 2017
HK

Markahæsti leikmaður 1.deildar kvenna 2017
Alina Molkova – Víkingur með 238 mörk

Markahæsti leikmaður 1.deildar karla 2017
Jón Kristinn Björgvinsson – ÍR með 158 mörk

Markahæsti leikmaður Olís deildar kvenna 2017
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir – Selfoss með 174 mörk

Markahæsti leikmaður Olís deildar karla 2017
Theodór Sigurbjörnsson – ÍBV með 233 mörk

Besti varnarmaður 1.deildar kvenna 2017
Berglind Þorsteinsdóttir – HK

Besti varnarmaður 1.deildar karla 2017
Sveinn Þorgeirsson – Fjölnir

Besti varnarmaður Olís deildar kvenna 2017
Steinunn Björnsdóttir – Fram

Besti varnarmaður Olís deildar karla 2017
Ágúst Birgisson – FH

Besti sóknarmaður 1.deildar kvenna 2017
Alina Molkova – Víkingur

Besti sóknarmaður 1.deildar karla 2017
Jón Kristinn Björgvinsson – ÍR

Besti sóknarmaður Olís deildar kvenna 2017
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir – Selfoss

Besti sóknarmaður Olís deildar karla 2017
Theodór Sigurbjörnsson – ÍBV

Besti markmaður 1.deildar kvenna 2017
Margrét Ýr Björnsdóttir – HK

Besti markmaður 1.deildar karla 2017
Einar Baldvin Baldvinsson – Víkingur

Besti markmaður Olís deildar kvenna 2017
Guðrún Ósk Maríasdóttir – Fram

Besti markmaður Olís deildar karla 2017
   Sveinbjörn Pétursson – Stjarnan

Besta dómaraparið 2017
   Heimir Örn Árnason – Sigurður Hjörtur Þrastarson

Sigríðarbikarinn 2017
Steinunn Björnsdóttir – Fram

Valdimarsbikarinn 2017
Orri Freyr Gíslason – Valur

Besti þjálfari í 1.deild kvenna 2017
   Jónatan Þór Magnússon – KA/Þór

Besti þjálfari í 1.deild karla 2017
   Arnar Gunnarsson – Fjölnir

Besti þjálfari í Olís deildar kvenna 2017
Stefán Arnarson – Fram

Besti þjálfari í Olís deildar karla 2017
Guðmundur Helgi Pálsson – Fram

Efnilegasti leikmaður 1.deildar kvenna 2017
Andrea Jacobsen – Fjölnir

Efnilegasti leikmaður 1.deildar karla 2017
Sveinn Jóhannsson – Fjölnir

Efnilegasti leikmaður Olís deildar kvenna 2017
Sandra Erlingsdóttir – ÍBV

Efnilegasti leikmaður Olís deildar karla 2017
Viktor Gísli Hallgrímsson – Fram

Leikmaður ársins í 1.deild kvenna 2017
   Martha Hermannsdóttir – KA/Þór

Leikmaður ársins í 1.deild karla 2017
Jón Kristinn Björgvinsson – ÍR

Besti leikmaður í Olís deildar kvenna 2017
Steinunn Björnsdóttir – Fram

Besti leikmaður í Olís deildar karla 2017
Theodór Sigurbjörnsson – ÍBV

Heimir Örn Árnason

Sigurður Hjörtur Þrastarson

Jónatan Þór Magnússon, til hægri.

UMMÆLI

Sambíó