Prenthaus

Sex ára drengur sem týndist á Akureyri fannst með hjálp Facebook

Sex ára drengur sem týndist á Akureyri fannst með hjálp Facebook

Í gær týndist sex ára drengur í miðbæ Akureyrar. Drengurinn sem að er einhverfur fór frá móður sinni á Ráðhústorgi um klukkan 16:00 í gær.

Lögreglan auglýsti eftir drengnum á Facebook síðu sinni. „Dreng­ur­inn er klædd­ur í gul­an vindjakka, með marg­litað (skræpótt) buff og í nýj­um svört­um skóm. Þeir sem hafa séð til ferða drengs­ins eru beðnir um að hringja í 112,“ seg­ir í færslu á Face­book-síðu lög­regl­unn­ar á Norður­landi eystra.

Stuttu eftir að færslan birtist uppfærði lögreglan færsluna með upplýsingum um að drengurinn væri fundinn. „Við þökkum kærlega fyrir hjálpina, hún skilaði sér, takk,“ segir í færslunni sem hefur verið deilt yfir 500 sinnum.

UMMÆLI

Sambíó