Síðuskóli fékk Grænfánann í níunda skipti

Síðuskóli fékk Grænfánann í níunda skipti

Í dag fékk Síðuskóli á Akureyri Grænfánann afhentan í níunda skipti við hátíðlega athöfn í íþróttasal skólans. Greint er frá þessu á vef Akureyrarbæjar í dag.

Ólöf Inga Andrésdóttir, skólastjóri, flutti ávarp og nemendur í umhverfisnefnd kynntu Samgöngusáttmála Síðuskóla sem gerður var í vetur. Nemendur í 4. bekk sungu lag og Síðuskólasöngurinn var sunginn.

Á vef bæjarins segir að í vetur hafi verið haldin myndasamkeppni til að hanna skilti fyrir bílastæði og sleppisvæði skólans. Tilgangurinn var að minna þá sem koma á bíl að drepa á honum meðan beðið er við skólann. Tvær myndir voru valdar, skilti gerð og verða þau sett á bílastæði skólans á næstunni. Þessi skilti voru sýnd á hátíðinni í dag.

Það var Rán Þórarinsdóttir, fulltrúi Landverndar, sem afhenti skólanum viðurkenningarskjal og umhverfisnefnd tók við Grænfánanum. Að lokum var fáninn dreginn að húni.

Hér má sjá myndir frá hátíðinni. 


UMMÆLI

Sambíó