Sigló hótel þátttakandi í „Fræðslu í ferðaþjónustu“

Undirritun samstarfssamnings um „Fræðslu í ferðaþjónustu“. Frá vinstri: Hildur Bettý Kristjánsdóttir, starfsmaður Hæfniseturs ferðaþjónustunnar, Sigríður María Róbertsdóttir, framkvæmdastjóri Sigló hótels, og Valgeir B. Magnússon, framkvæmdastjóri Símenntunarmiðstöðvar Eyjafjarðar.

Undirritaður hefur verið þríhliða samningur milli SÍMEY, Sigló hótels á Siglufirði og Hæfniseturs ferðaþjónustunnar um að Sigló hótel taki þátt í tilraunaverkefninu “Fræðsla í ferðaþjónustu”.

Veitingastaðirnir Strikið og Bryggjan munu einnig taka þátt í verkefninu sem felst í því að fræða starfsfólk í ferðaþjónustu og auka hæfni þess.

Samningurinn, sem var undirritaður af Sigríði Maríu Róbertsdóttur f.h. Sigló hótels, Valgeiri B. Magnússyni f.h. SÍMEY og Hildi Bettý Kristjánsdóttur f.h. Hæfniseturs ferðaþjónustunnar, er til sextán mánaða eða til júní 2019 og tekur til viðamikillar vinnu sem verkefnastjórar af hálfu SÍMEY – Helgi Þorbjörn Svavarsson og Ingunn Helga Bjarnadóttir – og Hildur Bettý Kristjánsdóttir, starfsmaður Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og Hæfniseturs ferðaþjónustunnar, stýra í samstarfi við Sigló hótel.

Til að byrja með verður sett upp verkefnið „Fræðslustjóri að láni“, sem gengur út á að ráðgjafi greini fræðsluþörf starfsmanna Sigló hótels og í framhaldinu verður unnin markviss símenntunar- og fræðsluáætlun fyrir fyrirtækið. Í lok verkefnisins, að tæpu hálfu öðru ári liðnu, verður unnin lokaskýrsla og metinn árangur af verkefninu.

 


UMMÆLI