Siglufjörður tilnefndur sem mataráfangastaður Norðurlanda

Siglufjörður var á dögunum tilnefndur til Embluverðlaunanna í flokknum Mataráfangastaður Norðurlanda 2017. Embluverðlaunin verða veitt í Kaupmannahöfn 24. ágúst næstkomandi. Verðlaunin verða veitt á sama tíma og ein stærsta matarhátíð Norðurlandanna fer þar fram, Copenhagen Cooking.

Embla er heitið á norrænum matarverðlaunum sem öll bændasamtök á Norðurlöndunum standa að í samvinnu við norrænu ráðherranefndina.

Alls eru sjö verðlaunaflokkar en þeir eru ásamt tilnefndum fulltrúum frá Íslandi:

Hráefnisframleiðandi
Friðheimar. Tómataframleiðsla, veitingastaður og ferðaþjónusta. Vefsíða: www.fridheimar.is

Matur fyrir marga
Eldum rétt. Heimsending á uppskriftum og hráefni til eldunar. Áhersla á minni matarsóun og heilbrigðara líferni. Vefsíða: www.eldumrett.is

Matur fyrir börn og ungmenni
Vakandi – Rakel Garðarsdóttir og Hrefna Rós Sætran fyrir barnamat sem unninn er úr íslenskum hráefnum. Vefsíða: www.vakandi.is

Matarfrumkvöðull
Pure Natura ehf. – Framleiðsla á bætiefnum úr íslenskum hráefnum; innmat og villtum jurtum. Vefsíða: www.purenatura.is

Matvælaiðnaðarmaður
Saltverk. Saltframleiðsla á Reykjanesi á Vestfjörðum sem nýtir jarðhita og fornar vinnsluaðferðir. Vefsíða: www.saltverk.is

Mataráfangastaður
Siglufjörður. Gamli síldarbærinn byggir á sögu og tengir hana við vandaða afþreyingu, fjölbreyttan matvælaiðnað og frábæra matsölustaði. Vefsíða: www.visittrollaskagi.is og www.sild.is

Kynningarherferð / Matarblaðamennska
Icelandic Lamb. Markaðsfærsla og vörumerkjaþróun á afurðum íslensku sauðkindarinnar. Vefsíða: www.icelandiclamb.is

Í dómnefndinni sitja þau Guðrún Tryggvadóttir, bóndi í Svartárkoti, Bjarni Gunnar Kristinsson, matreiðslumeistari í Hörpu og Brynja Laxdal, verkefnastjóri hjá Matarauði Íslands.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó