Sjáðu Sóley, 15 ára lyfta meira en hálfu tonni – myndband

Sóley Jónsdóttir

Eins og við greindum frá í gær varð Sóley Jónsdóttir, kraftlyftingakona í KFA, Evr­ópu­meist­ari telpna í +84 kg flokki. Hún gerði sér einnig lítið fyrir og bætti Íslands­meti í sam­an­lögðum árangri í opn­um flokki þegar hún lyfti samtals 527,5 kg.

Í hné­beygju lyfti Sól­ey 215 kg en í bekkpressu og lyfti hún 112,5 kg. Sóley lauk svo frábærri keppni með því að lyfta 200 kg í réttstöðulyftu. Á meðfylgjandi myndbandi má sjá allar lyftur Sóleyjar frá því gær.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó