Sjö teymi taka þátt í Startup Storm

Sjö teymi taka þátt í Startup Storm

Sjö nýsköpunarteymi af Norðurlandi hafa verið valin til þátttöku í viðskiptahraðalinn Startup Storm sem hefst 4. október.

Þetta er í þriðja sinn sem Norðanátt heldur viðskiptahraðal fyrir frumkvöðla og fyrirtæki á Norðurlandi.

Startup Stormur er sjö vikna viðskiptahraðall fyrir græn verkefni á Norðurlandi. Dagskráin er hönnuð með þarfir þátttakenda í huga en á þessu sjö vikna tímabili munu teymin hitta reynslumikla leiðbeinendur og stjórnendur fyrirtækja frá öllu landinu, sitja vinnustofur og fræðslufundi og mynda sterkt tengslanet sín á milli. 

Hraðallinn er frjór vettvangur til að þróa hugmyndir sínar og vörur, læra um rekstur fyrirtækja, markaðssetningu, undirbúa fjármögnun og margt fleira. Markmiðið er að hjálpa teymunum að vaxa hratt á þessum sjö vikum og á þeirra forsendum.

Í ár eru þrjú fyrirtæki frá Norðurlandi eystra sem taka þátt og fjögur frá Norðurlandi vestra.

Þátttakendur í Startup Stormur 2023: 

3D Lausnir – Hringrása steypa og þrívíddarprentun.

Vallhumall 
Gamalkunn íslensk lækningajurt, sem hér fær plantan nýtt hlutverk sem bragðefni í matvælaframleiðslu.

Rækta microfarm  Minnkum kolefnisspor og drögum úr innflutningi og matarsóun – Rækta Microfarm er umhverfisvæn framleiðsla á grænsprettum, sælkerasveppum og hampblómum.

Ró heilsa  Hampurinn heillaði okkur og hvað hann getur gert, við fórum því af stað með Ró CBD.

Ísponica  Ræktun grænmetis og kryddjurta með aquaponics (afrennsli fiskeldis) lóðréttri búskap. Markmiðið er að rækta mat innandyra, allt árið um kring með áherslu á sjálfbæra framleiðslu.

Sigló Sea – Sustainable sea seaweed farming/harvesting and mussel farming and community based tourism development.

Kvörn – Kvörn Kaffibrennsla í Skagafirði, nýbrennt og ferskara kaffi

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó