Skapandi krakkar á Norðurlandi

Skapandi krakkar á Norðurlandi

Undanfarna daga hafa listamennirnir Jonna og Brynhildur Kristinsdóttir flakkað um Norðurland með listasmiðjur í gerð handbrúða.

„Viðtökur hafa verið frábærar og krakkarnir verið svo skapandi og hugmyndarík,“ segja Jonna og Brynhildur. Þær ferðast með smiðjurnar í strætó og smiðjudótinu koma þær fyrir á vagni sem þær draga á eftir sér.

Í smiðjunum læra þátttakendur að búa til handbrúður og brúðuleikhús. Unnið er með fjölbreyttar aðferðir og efni. Verkefnið er hugsað fyrir börn á öllum aldri. Verkefnin sem eru lögð fyrir byggja á grundvallaratriðum sjónlista þar sem unnið er með tvívítt og þrívítt form, liti, áferð, ljós og skugga. Einnig kynnast  þátttakendur töfrum leikhússins og búin til leikmynd fyrir handbrúðurnar. Við kynnum appið PowerDirector og í lokin fá krakkarnir að búa til stutt myndband.

Smiðjurnar hafa þegar verið á Akureyri, Hrísey og Siglufirði. Næstu smiðjur verða á Raufarhöfn 20.-21. júlí. Verkefnið hlaut styrk frá SSNE.

UMMÆLI