Skerpa á sóttvörnum í leik- og grunnskólum Akureyrarbæjar

Skerpa á sóttvörnum í leik- og grunnskólum Akureyrarbæjar

Akureyrarbær hefur ákveðið að skerpa á sóttvörnum í leik- og grunnskólum bæjarins í ljósi þess að smitum hefur farið hratt fjölgandi á landinu að undanförnu.

Eftirfarandi tilmælum hefur verið beint til starfsfólks leik- og grunnskóla Akureyrarbæjar:

– Stöðugt verði minnt á eins metra regluna.
– Reglulega skal minnt á persónulegar sóttvarnir og aukin þrif skulu allsstaðar vera til staðar.
– Allir fullorðnir sem í skólana koma spritti hendur við komu og noti grímu verði ekki hægt að virða fjarlægðarmörk.
– Foreldrar leikskólabarna komi eingöngu í forstofur skólanna.
– Skólaþjónustan mun halda sinni þjónustu áfram þannig að:
o hver starfsmaður fer eingöngu í einn skóla á dag í áhorf
o ekki er grímuskylda í vinnu með börnum
o fundir verða í fjarfundi þar sem því verður við komið
o grímuskylda er á borðfundum með foreldrum eða samstarfsfundum með starfsfólki skólanna ef rými eru lítil eða ekki er hægt að virða fjarlægðarmörk
– Mælst er til þess að starfsfólk skólanna fari ekki á landsvæði þar sem nýgengi smita er hátt nema brýna nauðsyn beri til.
– Útleigu á grunnskólunum verður hætt tímabundið frá og með 1. október.

Sóttvarnarreglur í grunnskólum verða endurskoðaðar 23. október næstkomandi.

Sambíó

UMMÆLI