Skíðavertíðin fer vel af stað í Hlíðarfjalli

Fyrstu gestir vetrarins bíða eftir að fara upp með Fjarkanum. Frá vinstri: Tómas, Stefán, Agata og Fríða. Mynd af vef Akureyrarbæjar.

Hátt í 300 manns renndu sér í góðu færi fyrsta skíðadaginn í Hlíðarfjalli á sunnudaginn. Opið verður í fjallinu frá fimmtudegi til sunnudags næstu vikurnar. Lokað verður á aðfangadag en opnað aftur á jóladag og eftir það opið daglega ef aðstæður leyfa.

Sala vetrarkorta hefur gengið mjög vel og snjóframleiðsla er hafin en hefur verið ofurlítið brokkgeng því það þarf 4 gráðu frost til að vélarnar geti breytt vatni í snjó. Það er hörkugaddur í kortunum og þá verða snjóbyssurnar látnar ganga viðstöðulaust.

Nánari upplýsingar um opnunartíma í Hlíðarfjalli.

UMMÆLI