Origo Akureyri

Skráning á Pollamótið í fullum gangi

Skráning á Pollamótið í fullum gangi

Opnað hefur verið fyrir skráningar á Pollamót Samskipa sem fram fer dagana 7. og 8. júlí félagssvæði Þórs.
Skráningar fara fram á vef mótsins. Fyrir þá sem vilja senda inn fyrirspurnir er bent á netfang mótsins pollamot@thorsport.is.

Dagskrá mótsins er sérstaklega glæsileg í ár en auk taumlausrar gleði á vellinum verður skemmtidagskrá föstudag og laugardag þar sem sjálfur konugur poppsins, Páll Óskar stígur á stokk.

Heyrst hefur að meistarar síðasta árs, Vinir Linta, ætli sér að gera hið ómögulega, að verja titilinn.

Þeir sem vilja skrá lið á mótið geta smellt hér.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó