Prenthaus

Slakað á grímuskyldu í strætisvögnum Akureyrar

Slakað á grímuskyldu í strætisvögnum Akureyrar

Eftir nánari fyrirmæli frá almannavörnum hefur verið ákveðið að slaka á kröfum um grímuskyldu í strætisvögnum SVA. Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook síðu strætisvagna Akureyrar.

„Við viljum þó áfram beina vinsamlegum tilmælum til farþega okkar að nota grímur um borð í vögnunum en niðurstöður nýlegra rannsókna benda til þess að grímur geta haft áhrif á að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar og mælir Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin opinberlega með notkun gríma,“ segir í tilkynningunni.

Um borð í vögnum SVA eru sprittbrúsar á móts við inngang í vagnana og eru allir farþegar beðnir um að spritta sig um leið og gengið er um borð.

Sem fyrr verður miðað við að ekki séu fleiri í vögnunum en 30 í einu og eru farþegar beðnir um að virða 2 metra regluna í hvívetna.

Fremstu sætaraðir eru hugsaðar sérstaklega fyrir þá farþega sem vilja einangra sig enn frekar frá öðrum farþegum en gengið er inn að aftan í vagnana.

UMMÆLI