Smári Jónas fulltrúi SSNE í Loftlagsráði

Smári Jónas fulltrúi SSNE í Loftlagsráði

Samband íslenskra sveitarfélaga hefur tilnefnt Smára Jónas Lúðvíksson verkefnastjóra umhverfismála hjá SSNE til setu í Loftlagsráði. Loftlagsráð hefur það meginverkefni að veita stjórnvöldum aðhald og ráðgjöf um stefnumarkandi ákvarðanir og markmið Íslands sem tengjast loftlagsmálum.

Loftlagsráð er þannig vettvangur hagaðila að koma ábendingum og hugmyndum á framfæri til stjórnvalda. Ráðið nýtist einnig vel sem samræðuvettvangur fyrir fulltrúa ólíkra sjónarmiða til að fjalla um um mismunandi leiðir til að takast á við þau loftslagstengdu úrlausnarefni sem við stöndum frammi fyrir.

Smári tekur sæti annars tveggja fulltrúa Sambands íslenskra sveitarfélaga og tekur sæti Sveins Margeirssonar, fráfarandi sveitarstjóra Skútustaðahrepps. Aðrir fulltrúar og varafulltrúar í ráðinu koma frá ASÍ, Festu, Bændasamtökum Íslands, Viðskiptaráði Íslands, Neytendasamtökunum, Samtökum atvinnulífsins, umhverfissamtökum og háskólasamfélaginu.

Sambíó

UMMÆLI