Prenthaus

Snjóflóð sprengd niður í HlíðarfjalliMynd: Akureyri.is

Snjóflóð sprengd niður í Hlíðarfjalli

Fjögur snjóflóð féllu í Hlíðarfjalli í dag af völdum sprenginga sem settar voru af stað með sérstökum búnaði sem ætlaður er til að sprengja af stað snjóflóð. Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli fékk í morgun til umráða tvo glænýja og öfluga snjótroðara sem verða komnir á beltin og byrjaðir að troða strax á morgun. Talsvert hefur snjóað síðustu daga og voru snjóhengjur á efstu fjallabrúnum ekki álitlegar. Greint er frá þessu á vef bæjarins.

Vegna snjóhengjanna var því gripið til þess ráðs að nota litlar sprengjur til að setja af stað snjóflóðin. Fjögur snjóflóð hlupu af stað og var eitt þeirra sýnu stærst eða á að giska 200 metrar á breidd. Vonast er til að þessar aðgerðir dragi mjög úr snjóflóðahættu og auki öryggi skíðafólks til mikilla muna.

„Snjóagirðingar á skíðasvæðinu hafa verið notaðar til að hefta snjó þannig að hann fjúki ekki allur í burtu jafnóðum. Það hefur gengið gríðarlega vel og síðustu daga hefur verið unnið að því að ýta úr snjógirðingunum, jafna úr snjónum og þétta í brekkum. Með þessu móti er horft til daganna fram undan og reynt að tryggja að færið verði gott um helgina jafnvel þótt þá megi búast við hláku um tíma,“ segir á vef bæjarins.

„Það er kalt núna og gíðarlega gott færi, eiginlega stórkostlegt skíðaveður,“ segir Brynjar Helgi Ásgeirsson forstöðumaður í Hlíðarfjalli í viðtali við vef bæjarins. „Sjálfan blóðlangaði mig á skíði í morgun en verð auðvitað að sinna rekstrinum og skipuleggja næstu daga. Það gæti brugðið til beggja vona um helgina því veðurspáin gerir ráð fyrir hálfgerðum stormi aðfararnótt laugardagsins með asahláku. Þá verður unnið dag og nótt við að undirbúa laugardaginn því síðan lægir hratt og byrjar aftur að kólna. Ég geri mér því vonir um að við getum haft opið eins og venjulega á laugardaginn og sunnudagurinn lítur vel út.“

Heiður Þórisdóttir, ofanflóðasérfærðingur hjá Veðurstofunni, segir í samtali við fréttastofu RÚV að það sé jákvætt að tekist hafi að setja snjóflóðin af stað með sprengingum. Á þennan hátt sé hægt að losa snjó sem vitað er að hætta geti stafað af.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó