Snorri Bergþórsson ráðinn framkvæmdastjóri FimAk

Snorri Bergþórsson

Snorri Bergþórsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri FIMAK, Fimleikafélags Akureyrar. Þetta kom fram í tilkynningu á heimasíðu fékagsins í gær. Snorri hefur undanfarna þrjá vetur verið í viðskiptafræðinámi við HA en hann mun ljúka því námi um næstu áramót. Snorri er einnig íþróttafræðingur að mennt frá Laugavatni og hefur starfað sem íþrótta- og umsjónarkennari við Lundarskóla frá árinu 2007.

Ég er mjög ánægður að fá að takast á við þau krefjandi verkefni sem bíða mín hjá FIMAK. Næstu daga mun ég nýta til að koma mér inn í starfið og kynnast öllu því góða fólki sem ég mun starfa með næstu árin“.

Snorri mun hefja störf í dag 9. maí. Í tilkynningunni þakkar FIMAK fráfarandi framkvæmdastjóra, Rut Jónsdóttur, fyrir góð störf síðastliðin ár og býður Snorra velkominn til starfa.

 

 

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó