Sparisjóður Höfðhverfinga og KA/Þór undirrita samstarfssamning

Sparisjóður Höfðhverfinga og KA/Þór undirrita samstarfssamning

Sparisjóður Höfðhverfinga hefur undirritað samstarfssamning við kvennalið KA/Þórs. Þetta er eitt af verkefnum á sviði íþrótta- og tómstundamála sem Sparisjóðurinn styrkir í nærumhverfi sínu en í tilkynningu segir að hlutverk Sparisjóðsins sé að standa vörð um hagsmuni landsmanna, styrkja innviði samfélagsins og styðja við félags- og atvinnulíf í heimabyggð.

„Við erum afskaplega ánægð með að ganga til samstarfs við Sparisjóðinn og hlökkum til samstarfsins. KA/Þór er að ganga í gegnum endurnýjunarferli og eru mörg krefjandi verkefni framundan og skiptir þá öflugur bakhjarlahópur miklu máli,“ sagði Stefán Guðnason stjórnarformaður KA/Þór

„Samstarf við kvennalið KA/Þórs smellpassar við sjálfbærnistefnu Sparisjóðsins en hluti af henni tekur á samfélagslegri ábyrgð þar sem við styðjum við íþrótta- og félagsstarf í nærumhverfi okkar. Við óskum KA/Þór góðs gengis í þeim verkefnum sem eru framundan,“ segir Jón Ingvi Árnason sparisjóðsstjóri sparisjóðs Höfðhverfinga.

Á meðfylgjandi mynd má sjá Jón Ingva Árnason sparisjóðsstjóra Sparisjóðs Höfðhverfinga og Mörthu Hermannsdóttur handboltakempu og fulltrúa KA/Þórs undirrita samstarfssamninginn.


UMMÆLI