Intersand MaxCare 12 kg | Gæludýr.is

Staðfest smit orðin 19 á Norðurlandi eystra

Staðfest smit orðin 19 á Norðurlandi eystra

Staðfest smit vegna COVID-19 eru nú orðin 19 á Norðurlandi eystra samkvæmt nýjustu tölum frá Embætti landlæknis og Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Nýjustu tölur voru birtar kl. 13 í dag inn á covid.is.

Sjá einnig: Ekki með tölur yfir staðfest smit á Akureyri

Smituðum einstaklingum hefur fjölgað um þrjá frá því gær þegar 16 voru smitaðir. Í fyrradag voru 13 smitaðir. Einstaklingum í sóttkví hefur fækkað úr 447 í 414 frá því í gær.

Ef þú finnur fyrir einkennum eða óttast smit hringdu þá í 1700. Veikir einstaklingar eru sérstaklega beðnir um að mæta ekki á bráðamóttöku sjúkrahúsa eða á heilsugæslustöðvar nema að fengnum ráðleggingum í síma. Upplýsingar um veiruna og viðbrögð á vef Embættis Landlæknis.

UMMÆLI