Stærsta Súlur Vertical hlaup frá upphafi

Stærsta Súlur Vertical hlaup frá upphafi

Utanvegahlaupið 66° Norður Súlur Vertical fer fram 30. júlí næstkomandi. Allt stefnir í að hlaupið verði það stærsta frá upphafi og hápunktur verslunarmannahelgarinnar á Akureyri. Í fyrsta sinn verður krakkahlaup í Kjarnaskógi hluti af hlaupahátíðinni ásamt menningarskokki með leiðsögn um Akureyri.

Líkt og í fyrra er keppt í þremur vegalengdum: 18km, 28km og 55km ultra. Í öllum tilvikum er ræst í Kjarnaskógi og komið í mark í miðbæ Akureyrar. Lengsta vegalengdin inniheldur um 3.000 metra hækkun þar sem hlaupið er meðal annars upp á bæjarfjöllin Súlur og Hlíðarfjall og um hinn ægifagra Glerárdal. Hlaupaleiðin er einstaklega fjölbreytt en jafnframt er hún talin ein af mest krefjandi keppnisleiðum sem boðið er upp á í fjallahlaupum hér á landi.

Mikil áhersla er lögð á metnaðarfulla umgörð og ógleymanlega upplifun þátttakenda á öllum stigum. Jafnvel þótt keppnishlaupin séu í forgrunni þá verða að þessu sinni nýir hliðarviðburðir á dagskrá sem eiga að höfða til sem flestra. Á föstudeginum 29. júlí verður Krakkahlaup Súlur Vertical haldið í Kjarnaskógi þar sem 12 ára og yngri fá að spreyta sig í utanvegahlaupi við hæfi, njóta samveru með fjölskyldunni og þiggja léttar veitingar. Seinna sama dag býður Vilhjálmur Bergmann Bragason listamaður öllum sem vilja í létt menningarskokk með leiðsögn um Akureyri.

Í fyrra var viðburðurinn haldinn í skugga Covid-19 en þrátt fyrir það hlupu á fjórða hundrað manns við frábærar aðstæður í fádæma veðurblíðu.

Skráning í Súlur Vertical 2022 er enn í fullum gangi og miðar vel. Hátt í 500 hlauparar hafa boðað komu sína og er reiknað með að þónokkrir bætist við á lokametrunum. Þar af leiðandi búa skipuleggjendur sig undir langstærsta Súlur Vertical viðburðinn frá upphafi. Vonast er til að sem flestir hlauparar og fjölskyldur þeirra heimsæki Akureyri um verslunarmannahelgina og njóti þess sem norðlensku fjöllin hafa upp á að bjóða.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó