Starfsemi Karlakórs Fjallabyggðar hefst á ný

Starfsemi Karlakórs Fjallabyggðar hefst á ný

Starfsemi hjá Karlakór Fjallabyggðar hefst að nýju mánudaginn 23. janúar næstkomandi klukkan 19:00.  Kórstarfið hefur legið niðri frá því að Covid-19 faraldurinn hófst.

Í tilkynningu frá karlakórnum kemur fram að fjöldi núverandi kórfélaga hefur nú þegar staðfest þátttöku sína sem og nýir kórfélagar. Þá er tekið fram að gamlir félagar og áhugasamir nýliðar séu hjartanlega velkomnir í kórinn.

Karlakór Fjallabyggðar hefur fengið til liðs við sig tvo nýja stjórnendur, þau Eddu Björk Jónsdóttir kórstjóra og Guðmann Sveinsson sem mun sjá um hljómsveit kórsins.

Kórfélagar eru beðnir að taka með sér nóturnar, byrjað verður á léttu spjalli og upprifjun.

Sambíó

UMMÆLI