![Starfsfólk Íslandsbanka á Akureyri í jólaskapi.](http://www.kaffid.is/wp-content/uploads/2016/12/15420831_1608846456087324_8383108192830674225_n.jpg)
Starfsfólk Íslandsbanka á Akureyri í jólaskapi.
Starfsmenn Íslandsbanka á Akureyri gerðu sér glaðan dag í aðdraganda jóla síðastliðinn föstudag þegar þeir mættu í jólapeysum til vinnu og höfðu sérstakt jólakaffi.
Samhliða því var safnað framlögum meðal starfsmanna útibúsins og söfnuðust alls 90 þúsund krónur.
Peningurinn var afhentur Jólaaðstoðinni í formi níu gjafakorta frá Íslandsbanka.
Jólaaðstoðin er samstarfsverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar, Hjálpræðishersins, Mæðrastyrksnefndar Akureyrar og Rauðakrossins og miðar að því að létta undir jólahaldi fjölskyldna á Eyjafjarðarsvæðinu. Félögin hafa unnið saman að þessu verkefni síðastliðin fjögur ár og hafa um 350 fjölskyldur notið aðstoðar árlega um jólahátíðina að því er segir á heimasíðu verkefnisins.
UMMÆLI