Stefán Elí gefur út myndband við lagið Big Blessings

Stefán Elí gefur út myndband við lagið Big Blessings

Tónlistarmaðurinn Stefán Elí gaf í dag út myndband við lagið sitt Big Blessings sem kom út í lok október. Myndbandið er tekið upp við Atitlán vatn í Gvatemala.

„Það nærir hjarta mitt að skapa list og ég fyllist af spenningi og gleði þegar kemur að því að deila sköpunarverkum mínum með ykkur. Nú er stundin runnin upp og það er með mikilli ánægju sem ég deili mínu nýjasta verki Big Blessings. Lagið samdi ég og tók upp hér við vatnið Atitlán í Guatemala þar sem ég bý nú. Big Blessings (Stórar Blessanir) er áminning um heilagleika sköpunarinnar og um valið sem við öll höfum til þess að skapa það líf sem okkur raunverulega langar til þess að lifa. Við höfum val til þess að sleppa tökunum af neikvæðni og því sem okkur ekki þjónar til þess að stíga inn í okkar æðsta sjálf og upplifa allar hinar óteljandi blessanir sem lífið ber með sér. Ásetningurinn bakvið lagið er að skýna ljósi, ást og meðvitund inn í heiminn og að veita hlustendum innblástur til að gera slíkt hið sama,“ segir Stefán um lagið Big Blessings.

Sjáðu myndbandið við lagið hér að neðan


UMMÆLI

Sambíó