Stefnt að því að taka börn inn í leikskólann Klappir í haust

Stefnt að því að taka börn inn í leikskólann Klappir í haust

Áætlað er að framkvæmdum við leikskólann Klappir við Glerárskóla ljúki í lok ágúst næstkomandi og stefnt er að því að taka börn inn í leikskólann í byrjun september. Nú er unnið að frágangi innan í húsinu og á lóðinni í kring. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar.

Myndband: Framkvæmdir við Klappir ganga vel: „Verður flottasti leikskólinn á Akureyri“

„Í desember 2018 var tekin ákvörðun um að fara í byggingu á leikskóla (Klappir) við Glerárskóla. Miðað var við 145 barna leikskóla og að tekin yrðu inn börn frá eins árs aldri. Heildarstærð skólans er um 1450m² og skiptist húsið í tvær hæðir og eru þar 7 eins deildir með sameiginlegu miðjurými í gegnum allan skólann. Húsið er steinsteypt með múrklæðningu að utan og allir innveggir eru steyptir, sandsparslaðir og málaðir. Á efri hæð hússins eru yngri deildirnar ásamt ungbarnadeild, stjórnunarálmu og kaffiaðstöðu. Á neðri hæð hússins eru elstu tvær deildirnar ásamt eldhúsi og tengigangi inn í Glerárskóla og íþróttahús,“ segir á vef bæjarins.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó