Störf í boði í Grímsey

Störf í boði í Grímsey

Um þessar mundir bjóðast spennandi tækifæri í Grímsey en nú er verið að auglýsa tvö störf sem tengjast eyjunni.

Annars vegar er fyrirtækið Arctic Trip í Grímsey að leita að sumarstarfsmanni frá byrjun júní til og með ágúst sumarið 2020. Starfið felst í gönguleiðsögn, aðstoð á veitingastaðnum Kríunni og á gististað í eyjunni við ýmis tilfallandi verkefni. Krafist er góðrar færni í mannlegum samskiptum, góðrar tungumálakunnáttu og er enska skilyrði og kunnátta í öðrum tungumálum kostur. Hægt er að fá nánari upplýsingar um starfið í síma 8481696 og netfanginu: info@arctictrip.is.

Hins vegar auglýsir Þjóðskrá Íslands starf fulltrúa í Grímsey (og/eða Hrísey) sem skal annast verkefni við skráningu þinglýstra gagna í landeignaskrá. Um er að ræða tímabundið starf til ársloka 2021 með sveigjanlegu starfshlutfalli. Fulltrúinn heyrir undir deildarstjóra landupplýsingardeildar. Sjá nánar á vef starfatorgs.

Nánari upplýsingar um Grímsey má skoða hér.

UMMÆLI