Stórt skref í þá átt að gera strætóflota Akureyrar umhverfisvænan

Metanbílar í eigu Akureyrarbæjar og Norðurorku. Mynd: Akureyri.is

Í janúar 2017 var skrifað undir samning um ársleigu á metanstrætisvagni til reynslu. Samkvæmt heimasíðu Akureyrarbæjar hefur reynslan af notkun vagnsins hefur verið ákaflega góð og því var ákveðið að Akureyrarbær keypti vagninn þegar leigutíminn rann út.

Tveir metanvagnar til viðbótar hafa verið pantaðir og verður annar þeirra afhentur síðar á þessu ári en hinn árið 2019. Þar með munu þrír af fjórum strætisvögnum bæjarins ganga fyrir umhverfisvænum orkugjöfum. Metanið sem knýr vagnana er framleitt af Norðurorku hér á Akureyri.

Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður umhverfis- og mannvirkjaráðs segir í samtali við heimasíðu Akureyrar að nú hafi verið stigið stórt skref í þá átt að gera allan strætóflotann umhverfisvænan.

„Í umhverfis- og samgöngustefnu bæjarins segir að stefnt skuli að því að allir strætisvagnar bæjarins noti umhverfisvæna orkugjafa fyrir árið 2020 og það er alls ekki óraunhæft að svo verði. Hins vegar er ómögulegt að segja hvort fjórði vagninn verði metanvagn eða eitthvað annað því þróunin er svo ör í þessum málum,“ segir Ingibjörg.

UMMÆLI