Strætisvagnar hefja akstur um Hagahverfi

Strætisvagnar hefja akstur um Hagahverfi

Strætisvagnar Akureyrar munu hefja akstur um hið nýja Hagahverfi næstkomandi sunnudag, 22. maí. Leiðir 5 og 6 munu fara um hverfið sem staðsett er syðst í bænum. Leiðirnar lengjast því um 4 mínútur hver.

Tímatöflur strætó hafa breyst lítillega en ekki verður gefin út ný leiðabók. Hægt er að nálgast allar upplýsingar um strætóleiðir á Akureyri.is, í strætó-appinu og á straeto.is. Tilkynningar um frávik á akstri eru birtar á Facebook-síðu SVA og á straeto.is.

Vegna framkvæmda í miðbænum hefur endastöð strætisvagna verið færð frá Nætursölunni yfir götuna og er nú sunnan við BSO.

UMMÆLI