Sumarliði Helgason ráðinn sviðsstjóri hjá AkureyrarbæMynd: Helgi Steinar

Sumarliði Helgason ráðinn sviðsstjóri hjá Akureyrarbæ

Sumarliði Helgason, einnig þekktu sem Summi Hvanndal, hefur verið ráðinn í starf sviðsstjóra þjónustu- og skipulagssviðs sem auglýst var laust til umsóknar þann 26. júní sl. Alls bárust 28 umsóknir um starfið, fjórir umsækjendur drógu umsókn sína til baka. Þetta kemur fram á vef bæjarins.

Sjá einnig: 28 sóttu um nýtt starf sviðsstjóra hjá Akureyrarbæ

„Sumarliði lauk tölvunarfræðinámi frá Háskólanum á Akureyri árið 2004 og leggur stund á diplómanám í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands. Hann býr yfir mikilli reynslu í upplýsingatækni, hefur starfað sem svæðisstjóri Origo (áður Nýherja) á Norðurlandi frá árinu 2015 þar sem hann hefur meðal annars séð um rekstur, stýringu mannauðs, haft yfirumsjón með lausnaframboði til viðskiptavina á Norðurlandi og komið að þróun og innleiðingu í upplýsingatækni, þ.á m. í stafrænni þróun. Sumarliði var þjónustustjóri hjá Advania á árunum 2014-2015, viðskiptastjóri hjá Símanum 2011-2014, forstöðumaður upplýsingatæknimála hjá Saga Fjárfestingabanka 2007-2011. Áður var hann viðskiptastjóri, þjónustustjóri og þjónustu- og öryggisstjóri innan upplýsingatæknigeirans,“ segir á vef bæjarins.

Sumarliði kemur til starfa hjá Akureyrarbæ á allra næstu vikum. „Þjónustu- og skipulagssvið er nýtt stoðsvið sem ber ábyrgð á þjónustuferlum og þróun þeirra, stafrænum umbreytingum, skipulags- og byggingarmálum sem hluta af uppbyggingu og þróun sveitarfélagsins en faglegur hluti skipulags- og byggingamála er á ábyrgð forstöðumanna þeirra verkefna. Þá ber sviðið einnig ábyrgð á markaðs- og menningarmálum Akureyrarbæjar, innri og ytri upplýsingum og þjónustu s.s. rafrænni stjórnsýslu, heimasíðu bæjarins, þjónustuveri, skjalastjórnun, þjónustu við kjörna fulltrúa, rekstri og umsjón starfsstöðva og mötuneyta, íbúasamráði og atvinnumálum,“ segir í tilkynningu bæjarins.


UMMÆLI

Sambíó