Sumaropnun í HlíðarfjalliMynd: María Helena Tryggvadóttir

Sumaropnun í Hlíðarfjalli

Frá og með fimmtudeginum 7. júlí verður Fjarkinn í Hlíðarfjalli opinn á fimmtudögum og föstudögum frá kl. 17-21, á laugardögum 10-17 og sunnudögum frá kl. 10-16. Þessi sumaropnun stólalyftunnar gildir til 4. september og er um að gera að nota tækifærið til að skoða sig um þar.

Í Hlíðarfjalli er góð aðstaða til útivistar bæði fyrir hjólareiða- og göngufólk. Hægt er að taka hjólið með sér í lyftuna og fyrir fótgangandi gildir lyftumiðinn fram og til baka. Lyftumiðar eru seldir í lyftuskúr við Fjarkann og á heimasíðu Hlíðarfjalls.

Hlíðarfjall og Hjólreiðafélag Akureyrar bjóða upp á sex hjólabrautir í fjallinu í sumar: Suðurgil, Andrés, Hjalteyrin, Ævintýraleið, gamla downhill brautin og ný byrjendabraut við veginn upp að skíðagönguhúsi. Einnig eru þrjár leiðir sem allar liggja yfir í Glerárdal: Gosi, Drottning og Hrúturinn, tvær frá gönguskíðahúsinu og ein frá lyftuskúr við Fjarkann.

Fyrir þá sem eru gangandi er tilvalið að stoppa við Strýtuskála og njóta útsýnis yfir Akureyrabæ og Eyjafjörð. Frá Strýtuskála er merkt gönguleið upp á brún Hlíðarfjalls. Þegar þangað er komið er til dæmis hægt að ganga að Harðarvörðu, Blátindi, Bungu, Strýtu, Kistu eða á Vindheimajökul og á góðviðrisdögum má oft sjá yfir í Mývatnssveit, Herðubreið eða vestur í Skagafjörð svo eitthvað sé nefnt.


Frétt af Akureyri.is

Sambíó

UMMÆLI