Prenthaus

Sundlaugin í Grímsey opnuð á nýMynd: Anna María Sigvaldadóttir /Akureyri.is

Sundlaugin í Grímsey opnuð á ný

Sundlaugin í Grímsey hefur nú verið opnuð á ný eftir viðhald. Laugin var meðal annars máluð upp á nýtt. Þetta kemur fram á vef bæjarins.

„Sundlaugin í Grímsey er nyrsta laug landsins, hún er innanhússundlaug eins og flestar þær laugar sem ekki hafa aðgang að jarðhitavatni. Enginn jarðhiti er í Grímsey og því er allt rafmagn framleitt í díselrafstöð, kælivatnið frá stöðinni er síðan notað til að hita upp sundlaugina.

Laugin er opin 3 kvöld í viku og á laugardögum. Í sundlauginni er einnig boðið upp á heitan pott.
Tjaldstæði Grímseyjar er við sundlaugina,“ segir á Akureyri.is

Sambíó

UMMÆLI