Prenthaus

Svar við spurningu Kára Stefánssonar

Kaffið fékk leyfi frá Einari Brynjólfssyni oddvita Pírata í Norðausturkjördæmi til að birta pistil hans sem birtist á Vísi í dag.

Einar Brynjólfsson skrifar:

Einar Brynjólfsson

Einar Brynjólfsson

Sæll Kári, og takk fyrir síðast.

Í sjónvarpsþættinum Leiðtogaumræður, sem fram fór fimmtudagskvöldið 22. september sl., spurðir þú fulltrúa þeirra flokka sem bjóða fram í næstu Alþingiskosningum eftirfarandi spurninga:

1. Hvernig hyggist þið setja saman stefnu og hrinda henni í framkvæmd um heilbrigðismál á Íslandi?
2. Hvernig ætlið þið að hunzkast til að fjármagna það að því marki sem samfélagið vill?
3. Hvernig ætlist þið til þess að fólkið í landinu trúi að þið komið til með að standa við það sem þið segið, að kosningum loknum?

Ég var fulltrúi Pírata í þessum þætti og skemmti mér vel, þó að ég hafi reyndar verið ansi stressaður í þessari frumraun minni í sjónvarpi. Þó svo að ég hafi þónokkra reynslu af því að koma fram fór nú svo að mér fipaðist örlítið og ég gleymdi hreinlega að svara þriðju spurningunni. Ég vil biðjast afsökunar á því. Stjórnmálamenn, jafnt nýliðar sem aðrir, eiga að svara öllum spurningum sem fyrir þá eru lagðar. Reyndar virðist sem allir hinir þátttakendurnir hafi gleymt því líka, eða ekki viljað svara henni. Það skiptir þó ekki öllu máli en ég vil hér og nú svara umræddri spurningu.

Fólkið í landinu á að trúa okkur af því að við erum grasrótarflokkur. Valdið kemur neðan frá, frá hinum almenna félaga. Píratar eru langt í frá einsleitur hópur með svipaða hagsmuni. Þar að finna verkafólk, menntað fólk, láglaunafólk, hálaunafólk, heilsuhraust fólk og heilsulaust fólk. Fólk á Brávallagötunni og á Breiðdalsvík. Fólk í listgreinum og lækningum. Öll flóra mannlífsins á fulltrúa meðal Pírata.

Píratar þiggja ekki styrki frá hagsmunaaðilum. Þeir eru engum háðir og engum skuldbundnir. Þeir geta lagt til atlögu við varðhunda kerfisins þar sem þeir hafa engu að tapa. Það slær enginn á hendur Pírata.

Píratar trúa því að það sé ódýrast að reka heilbrigðiskerfi með því að verja miklum fjármunum í það. Skilvirkt og vel fjármagnað heilbrigðiskerfi kemur í veg fyrir fráflæðisvandamál og langa biðlista. Það kemur í veg fyrir að fólk þurfi að sitja heima, óvinnufært eða á rangri deild, með tilheyrandi kostnaði meðan það bíður eftir því að röðin sé komin að því. Skilvirkt og vel fjármagnað heilbrigðiskerfi sinnir forvörnum og tekur á heilsufarsvanda strax í upphafi. Skilvirkt og vel fjármagnað heilbrigðiskerfi linar þjáningar fólks og eykur lífsgæði.

Píratar eru í stjórnmálum til að breyta því sem virkar ekki.

Kveðja að norðan,
Einar Brynjólfsson, oddviti Pírata í Norðausturkjördæmi

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó