Origo Akureyri

Tæpum 25 milljónum úthlutað úr Menningar- og viðurkenningasjóði KEA

Tæpum 25 milljónum úthlutað úr Menningar- og viðurkenningasjóði KEA

KEA afhenti styrki úr Menningar- og viðurkenningasjóði félagsins þann 1. desember og fór styrkúthlutunin fram í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Var þetta í 90. skipti sem veitt er úr sjóðnum. Úthlutað var tæplega 24,7 milljónum króna til 60 aðila. Styrkúthlutun tók til þriggja flokka samkvæmt reglugerð sjóðsins: Menningar- og samfélagsverkefna, Íþrótta- og æskulýðsfélaga og Ungra afreksmanna.

Í flokknum Menningar- og samfélagsverkefni hlutu 22 aðilar styrki, alls 4,25 milljónir króna.

Aðalheiður S. Eysteinsdóttir, til að koma upp skúlptúrgarði við Alþýðuhúsið á Siglufirði

Umskiptingar, til að setja upp brúðuleikhúsið „Töfrabækurnar“

Menningarhúsið Berg, til sýningarhalds „Myndlist í Bergi“

Safnasafnið, Alþýðulist Íslands, til að halda „Búningardag“

Jón Haukur Unnarsson, til að halda fjöllistahátíðina „Mannfólkið breytist í slím“

Flóra menningarhús, til kaupa á tækjum fyrir hljómflutning í húsinu

Rósa María Stefánsdóttir, til að halda tónleikana „Ástarsæla“ fyrir alla sem vilja rækta ástina

Sesselía Ólafs, til að halda tónlistaruppistandið „Móðir, kona, meyja“

Kristjana Arngrímsdóttir, til að halda útgáfutónleika „Ég hitti þig“

Alexander Edelstein, til að hljóðrita píanóverk eftir Beethoven og Schumann

Ásta Soffía Þorgeirsdóttir, til tónleikahalds

Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis, til að auka þjónustu við krabbameinssjúka og aðstandendur

Grófin Geðrækt, til kaupa á skjá, til að nota við kynningar, fræðslu og námskeiðahalds

Dominique Gyða Sigrúnardóttir, vegna vinnusmiðju eldri borgara Dalvíkurbyggðar

Félag eldri borgara Siglufirði, til að setja upp púttvöll fyrir eldri borgara

AkureyrarAkademían, til að halda fræðandi fyrirlestra á hjúkrunar-og öldrunarheimilum

Arfur Akureyrarbæjar, til að halda erindi um húsvernd og endurnýtingu mannvirkja

Sigfús Ólafur Helgason fyrir hönd fyrrum sjómanna Útgerarfélags Akureyringa, til að smíða líkan af fimm fyrstu skuttogurum Útgerðarfélags Akureyringa

Hraðið miðstöð nýsköpunar, til kaupa á saumavél í Fablabið á Húsavík

Hælið, setur um sögu berklanna, til að bjóða 6. bekkingum á norðurlandi í heimsókn

Rebekka Kristín Garðarsdóttir, til að koma upp merktum hlaupaleiðum í Kjarnaskógi

Árný Þóra Ármannsdóttir, til að gera rannsókn um aðgengi fatlaðra að háskólanámi

Í flokki Íþróttastyrkja hlutu 21 aðilar styrki, samtals 17 milljónir króna.

Íþróttafélagið Þór

Knattspyrnufélag Akureyrar

KA/Þór handbolti kvennaráð

Þór/KA kvennaknattspyrna

Fimleikafélag Akureyrar

Golfklúbbur Akureyrar

Skautafélag Akureyrar

Skíðafélag AKureyrar

Hestamannafélagið Léttir

Hjólreiðafélag Akureyrar

Íþróttafélagið Akur

Sundfélagið Óðinn

Ungmennafélagið Samherjar

Dalvík/Reynir – Knattspyrndudeild m.fl. karla

Meistaraflokkur kvenna Dalvik/Reynir

Sundfélagið Rán

Skíðafélag Dalvíkur

Knattspyrnufélag Fjallabyggðar

Skíðafélag Ólafsfjarðar

Íþróttafélagið Völsungur

Íþróttafélagið Magni

Í flokki ungra afreksmanna hlutu 17aðilar styrk, samtals 3,4  milljónir króna.

Andrea Ýr Ásmundsdóttir, golf

Anna María Alfreðsdóttir, bogfimi

Aron Bjarki Kristjánsson , blak/knattspyrna

Birnir Vagn Finnsson, frjálsar íþróttir

Eva Wium Elíasdóttir, körfubolti

Freydís Jóna Jing Bergsveinsdóttir, listskautar

Veigar Heiðarsson, golf

Malín Marta Eyfjörð Ægisdóttir, dans

Skarphéðinn Ívar Einarsson, handbolti

Sunneva Kjartansdóttir, dans

Torfi Jóhann Sveinsson, skíði alpagreinar

Björn Andri Sigfússon, hjólreiðar

Lydía Gunnþórsdóttir, handbolti

Sonja Lí Kristinsdóttir, skíði alpagreinar

Valdimar Logi Sævarsson, kattspyrna

Arnór Darri Kristinsson, hestaíþróttir

Markús Orri Óskarsson, skák

UMMÆLI