Tahnai Annis aftur í raðir Þórs/KAMynd: thorka.is

Tahnai Annis aftur í raðir Þórs/KA

Knattspyrnukonan Tahnai Annis hefur skrifað undir samning við Þór/KA. Tahnai hefur spilað áður fyrir Þór/KA en hún kom fyrst til liðsins árið 2012, árið sem liðið varð Íslandsmeistari í fyrsta skipti. Þetta kemur fram á vef Þór/KA.

Tahnai hefur tvöfaldan ríkisborgararétt, fædd í Ohio í Bandaríkjunum og er með bandarískan ríkisborgararétt, en einnig filippseyskan. Hún hefur leikið með landsliði Filippseyja frá 2018, á þar 31 leik að baki og er fyrirliði landsliðsins. Landslið Filippseyja er á meðal þeirra liða sem fara á HM í sumar.

Tahnai er sóknarsinnaður miðjumaður. Hún lék með Þór/KA á árunum 2012-2014, samtals 72 leiki í efstu deild, bikarkeppni, deildabikar, meistarakeppni og Evrópukeppni. Hún skoraði 21 mark í þessum 72 leikjum. Hún var lykilleikmaður með Þór/KA 2012-2014 og var valin besti leikmaður liðsins eftir tímabilið 2013.

Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þórs/KA, þekkir Tahnai vel því hann var þjálfari liðsins þau ár sem hún var hjá Þór/KA og var sá sem fékk hana til liðsins þá. Jóhann kveðst ánægður með að fá hana aftur í okkar raðir í samtali við heimasíðu félagsins.

„Hún er auðvitað gæðaleikmaður, við vitum það frá því að hún var hér 2012-14, en lykilatriði fyrir okkur núna er að fá reynslu inn í hópinn, það er stórt atriði fyrir okkur eins og hópurinn er samsettur. Hún gerir alla leikmenn í kringum sig betri. Okkar ungi og efnilegi hópur hefur mjög gott af því. Þetta á eftir að hjálpa okkar leikmönnum sem fyrir eru mjög mikið. Auðvitað er hún líka frábær leikmaður og það spilar vissulega inn í þessa ákvörðun hjá okkur,“ segir Jóhann á thorka.is.

Ítarlegri umfjöllun um félagsskiptin má nálgast á vef Þór/KA með því að smella hér.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó