Tekið hart á brotum á siðareglum Bíladaga

Tekið hart á brotum á siðareglum Bíladaga

Mikil áhersla verður lögð á að allir gestir á Bíladögum virði siðareglur Bíladaga í ár og tekið verði hart á þeim brotum sem kunna að koma upp, líkt og gert hefur verið síðustu sumur. Þá gildir einu hvort brotin eiga sér stað utan eða innan aksturssvæðis BA.

Bíladagar 2021 hefjast á morgun, fimmtudaginn 17. júní og lýkur laugardaginn 19. júní. Fulltrúar frá Aflinu, Akureyrarstofu, Bílaklúbbi Akureyrar, umhverfismiðstöð Akureyrarbæjar, lögreglu og tjaldsvæðunum á Hömrum og Hrafnagili funduðu nýverið um hátíðina. Þetta kemur fram á vef bæjarins.

Þar segir að Aflið, samtök gegn kynferðis- og heimilisofbeldi, verði sýnileg á stærstu viðburðum og lögreglan fylgist vel með því að allt fari vel fram. Lögreglumenn á vakt verða á bæði merktum og ómerktum bílum. Starfsmenn Umhverfismiðstöðvar hafa komið upp hraðahindrunum víða um bæinn til að koma í veg fyrir spól og óvarlegan akstur sem er að sjálfsögðu bannaður eins og ávallt.

Siðareglur Bíladaga:

  • Við göngum (keyrum) vel um bæinn okkar, jafnt gestir sem heimamenn
  • Virðum hámarkshraða í íbúðarhverfum sem og á vegum úti
  • Við spólum einungis á akstursíþróttasvæði Bílaklúbbs Akureyrar
  • Gestir Bíladaga eru jákvæðir og þar af leiðandi þrælskemmtilegir
  • Við berum virðingu fyrir náunganum og tökum höndum saman um að gera Bíladaga frábæra
  • Gestir Bíladaga ganga snyrtilega um umhverfi sitt

Dagskrá Bíladaga 2019 er að finna hér.

Nánari upplýsingar um aðgang að viðburðum.

Sambíó

UMMÆLI