Tekjuskipting ríkis og sveitarfélaga verði tekin til gagngerrar endurskoðunar

Úr miðbæ Akureyrar

Á fundi bæjarstjórnar í síðustu viku var samþykkt  ályktun um mikilvægi þess að tekjuskipting ríkis og sveitarfélaga verði tekin til gagngerrar endurskoðunar. Tillagan var samþykkt með 11 samhljóða atkvæðum.

Bæjarstjórn Akureyrar telur það afar mikilvægt að tekjuskipting ríkis og sveitarfélaga verði tekin til gagngerrar endurskoðunar. Það verði að horfa til þeirra þróunar sem hefur orðið í samfélaginu eins og íbúaþróun, lýðfræðilegrar þátta, lagaskyldu og innviðauppbyggingar.

Í ályktuninni segir að verkefni sveitarfélaga hafi vaxið jafnt og þétt undanfarið og útlit sé fyrir að þau aukist enn frekar á næstu árum. Á meðan hafi heildartekjur hins opinberlega vaxið verulega og þá sérstaklega með auknum tekjum af ferðaþjónustu og að ríkið fái stærstan hlut þeirra tekjuaukningar. „Á sama tíma standa sveitarfélög frammi fyrir auknum kostnaði m.a. við innviðauppbyggingu vegna mikillar fjölgunar ferðamanna.“

Þá telur bæjarstjórn að rétt sé að horfa til þess að sveitarfélög hafi ekki nettóskattbyrði af virðisaukaskatti, fái hlutdeild í fjármagnstekjuskatti, í skattlagningu fyrirtækja og veiði- og auðlindagjöldum.

Sjá einnig:

Bæjarráð skorar á ríkið að ganga frá samningum um öryggisvistun

UMMÆLI

Sambíó