Þetta vilja börnin sjá!

Þetta vilja börnin sjá!

Sýningarrými Amtsbókasafnsins mun óðum fyllast af litríkum myndum úr barnabókum síðasta árs, en sýningin Þetta vilja börnin sjá! mun standa í safninu 2. – 25 ágúst. Á sýningunni gefur að líta myndskreytingar fjölmargra íslenskra myndlistarmanna við samtals tugi barnabóka sem komu út á árinu 2016, ásamt bókunum sjálfum. Myndir sýnenda eru eins fjölbreyttar og þær eru margar og gefur að líta verk bæði gamalreyndra teiknara sem fyrir löngu eru vel þekktir í heimi íslenskra barnabókmennta, sem og glæný verk myndhöfunda sem nú sýna í fyrsta sinn. Þarfir barna eru sérstaklega hafðar í huga við uppsetningu sýningarinnar, enda ljóst að viðfangsefni hennar er ætlað börnum frá byrjun.

Sýnendur í ár eru: Andri Kjartan Andersen, Ari Hlynur Guðmundsson Yates, Auður Þórhallsdóttir, Bergrún Íris Sævarsdóttir, Brynhildur Jenný Bjarnadóttir, Elín Elísabet Einarsdóttir, Elsa Nielsen, Freydís Kristjánsdóttir, Hafsteinn Hafsteinsson, Halla Sólveig Þorgeirsdóttir, Heiðdís Helgadóttir, Katrín Matthíasdóttir, Kristín Arngrímsdóttir, Kristín Ragna Gunnarsdóttir, Lára Garðarsdóttir, Linda Ólafsdóttir, Lína Rut Wilberg, Logi Jes Kristjánsson, Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir, María Sif Daníelsdóttir, Sigmundur Breiðfjörð Þorgeirsson, Sigrún Eldjárn, Þórey Mjallhvít H. Ómarsdóttir og Þórir Karl Bragason Celin.

Þetta er í 15. sinn sem sýningin Þetta vilja börnin sjá! er haldin í á vegum Borgarbókasafnsins – menningarhúss Gerðubergi og vekur hún jafnan verðskuldaða athygli. Sýningin mun standa á Amtsbókasafninu til 25. ágúst en að því loknu heldur sýningin austur á Hérað og í framhaldinu áfram um landið.

Sýningin mun standa sem fyrr segir 2.-25. ágúst og er opin gestum og gangandi á opnunartíma Amtsbókasafnsins alla virka daga kl. 10-19.

UMMÆLI

Sambíó