Þorlákur Árnason hættir hjá Þór

Þorlákur Árnason hættir hjá Þór

Þorlákur Árnason mun ekki þjálfa knattspyrnulið Þórs á Akureyri áfram. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef félagsins í dag. Þorlákur hefur þjálfað liðið frá haustinu 2021 og undir hans stjórn hafnaði liðið í 7. sæti Lengjudeildarinnar bæði tímabilin.

„Við í stjórn knattspyrnudeildar Þórs viljum fyrst og fremst þakka Láka kærlega fyrir sitt framlag til félagsins síðastliðin tvö ár. Ég gladdist verulega yfir ráðningu hans á sínum tíma þar sem hann hafði víða þekkingu til að miðla til félagsins okkar ásamt því að vera reynslumikill leiðtogi,“ segir Sveinn Elías Jónsson, formaður knattspyrnudeildar Þórs á vef félagsins.

Á þessum tveimur árum hefur mörgum ungum leikmönnum verið gefið tækifæri og þeir náð að þróast í að verða lykilmenn í liðinu. Það eru spennandi tímar framundan í Þorpinu og áhugavert verkefni sem bíður eftirmanns Láka að koma okkar liði í efstu deild,“ segir Sveinn Elías ennfremur.


UMMÆLI