Þórsarar boða til veislu í kvöld

vid_aramott_2016

Veisla í Hamri

Það verður mikið um dýrðir í Hamri, félagsheimili Þórs, í dag þegar kjöri á íþróttafólki ársins hjá félaginu verður lýst.

Þórsarar boða til veislu því félagsheimilið verður opið gestum og gangandi frá klukkan 18 og mun trúbadorinn geðþekki, Brynjar Davíðsson, meðal annars troða upp ásamt hinum síspræka Hákoni Guðna.

Rithöfundurinn Þorgrímur Þráinsson er aðalræðumaður dagsins en aðalviðfangsefni hans verður EM í Frakklandi sem fram fór síðasta sumar. Að endingu verður íþróttamaður og íþróttakona Þórs 2016 valin en hér fyrir neðan má sjá þau sem eru í kjöri þetta árið.

Knattspyrnufólk Þórs – Gunnar Örvar Stefánsson og Sandra Stephany Mayor Gutierrez

Körfuknattleiksfólk Þórs – Tryggvi Snær Hlinason og Unnur Lára Ásgeirsdóttir

Keilufólk Þórs – Bergþóra Pálsdóttir og Guðmundur Konráðsson

Pílufólk Þórs – Bjarni Sigurðsson og Jóhanna Bergsdóttir

Handknattleiksmaður Þórs – Hafþór Már Vignisson

Taekwondomaður Þórs – Haukur Fannar Möller

 

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó