Þórsarar semja við Rafael Victor

Þórsarar semja við Rafael Victor

Þórsarar hafa gert tveggja ára samning við portúgalska framherjann Rafael Victor. Rafael kemur til Þórs frá Njarðvík þar sem hann skoraði 13 mörk í Lengjudeildinni í fyrra og var þriðji markahæsti leikmaður deildarinnar. Áður hefur hann einnig leikið með Þrótti og Hetti/Huginn hér á landi.

Rafael sem er 27 ára gamall hefur einnig leikið í heimalandi sínu Portúgal, Ísrael og Póllandi.

„Ég valdi Þór af því að ég trúi á það verkefni sem þeir eru með í gangi. Ég fann að þeir höfðu virkilega trú á mínum hæfileikum og trúa að ég geti hjálpað þeim að ná markmiðum félagsins. Ég hlakka til að hefja þetta ferðalag,“ segir Rafael Victor í spjalli við heimasíðu Þórsara.

Sveinn Elías Jónsson formaður knattspyrnudeildar Þórs er ánægður að fá leikmannninn.

„Það er okkur í stjórn knattspyrnudeildar Þórs mikið ánægjuefni að tilkynna að náðst hefur samkomulag við Rafael Victor um að spila með okkur Þórsurum næstu tvö árin.

Síðustu ár hjá Þór hafa verið keyrð áfram á uppbyggingarstefnu og hafa margir ungir leikmenn fengið tækifæri í Þórsliðinu og staðið sig vel. Á því góða starfi hefur verið byggður grunnur að bjartri framtíð og samhliða því að áfram verði spilað á ungum og efnilegum Þórsurum þá teljum við lykilatriði að styrkja leikmannahópinn með auknum gæðum til að skapa samkeppni um hverja leikstöðu og styðja þannig við framþróun liðsins. Velkominn í Þorpið Rafa!“ segir Sveinn Elías

Sambíó

UMMÆLI