Þórskonur biðu lægri hlut fyrir Blikum

Mynd: Páll Jóhannesson

Deildarmeistarar Þórs eru undir í úrslitaeinvíginu Mynd: Páll Jóhannesson

Þór er 0-1 undir í úrslitaeinvígi 1.deildar kvenna í körfubolta eftir þriggja stiga tap í Síðuskóla í dag þar sem Breiðablik var í heimsókn. Leikurinn átti upphaflega að fara fram í gær en var frestað.

Sjá einnig: Þór-Breiðablik frestað – Dómarar og leikmenn komust ekki norður

Leikurinn var afar jafn og spennandi frá upphafi til enda. Hart var barist en lítið skorað og í leikhléi var staðan hnífjöfn, 20-20.

Þórskonur byrjuðu síðari hálfleikinn betur áður en Breiðablik tók svo yfir og vann að lokum þriggja stiga sigur, 40-43.

Vinna þarf tvo leiki til að tryggja sér sæti í efstu deild á næstu ári en næsti leikurinn í einvíginu fer fram syðra næstkomandi þriðjudag.

Stigaskor Þórs: Thelma Hrund Tryggva­dótt­ir 10, Rut Herner Kon­ráðsdótt­ir 9/​16 frá­köst, Unn­ur Lára Ásgeirs­dótt­ir 8, Helga Rut Hall­gríms­dótt­ir 6/​13 frá­köst, Heiða Hlín Björns­dótt­ir 4, Erna Rún Magnús­dótt­ir 3.

Stigaskor Breiðabliks: Sóllilja Bjarna­dótt­ir 16/​10 frá­köst, Auður Íris Ólafs­dótt­ir 8, Isa­bella Ósk Sig­urðardótt­ir 7/​13 frá­köst, Telma Lind Ásgeirs­dótt­ir 6, Eyrún Ósk Al­freðsdótt­ir 5, Hafrún Erna Har­alds­dótt­ir 1.

Sambíó

UMMÆLI