Þorsteinn Már stígur til hliðar sem forstjóri Samherja á meðan rannsókn fer fram

Þorsteinn Már stígur til hliðar sem forstjóri Samherja á meðan rannsókn fer fram

Þorsteinn Már Baldvinsson hefur ákveðið að stíga til hliðar sem forstjóri Samherja á meðan rannsókn á viðskiptaháttum fyrirtækisins í Namibíu og víðar fer fram. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samherja.

Björgólfur Jóhannesson fyrrum forstjóri Icelandair Group tekur tíma­bundið við stöðu for­stjóra Sam­herj­a. 

Hjá Samherja starfa um 850 manns á Íslandi og fjöldi manns erlendis. Við tökum þetta mikilvæga skref til að tryggja sem best hlutleysi rannsóknarinnar. Við viljum stunda heiðarleg viðskipti og leggjum okkur fram um að starfa í samræmi við gildandi lög og reglur”, er haft eftir Eiríki S. Jóhannssyni, stjórnarformanni Samherja í tilkynningunni.

Ítarleg umfjöllun um starfshætti Samherja í Namibíu birtist í Kveik og Stundinni fyrr í vikunni en um­­fjöll­unin var unnin í sam­­starfi KveiksStund­­ar­innar, Al Jazeera og Wik­i­­leaks.

Yfirlýsingu Samherja má lesa í heild sinni með þvi að smella hér.

Sambíó

UMMÆLI