Þriðjudagsfyrirlestur: Freyja Reynisdóttir

Þriðjudagsfyrirlestur: Freyja Reynisdóttir

Þriðjudaginn 29. október kl. 17-17.40 heldur Freyja Reynisdóttir, myndlistarmaður, Þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu á Akureyri undir yfirskriftinni Boltinn rúllar ef þú ýtir honum. Í fyrirlestrinum mun Freyja fjalla um þá ákvörðunartöku að starfa sem myndlistarmaður að loknu listnámi og hvert sú ákvörðun hefur leitt hana. Einnig mun hún koma inn á margvísleg málefni eins og skapandi hugsun sem allra handa verkfæri, vinnustofur listamanna, umsjón og stofnun sýningarýma, listasmiðjur, viðburðarstjórnun, hugarfar, tækifæri, kulnun, brottflutninga, sjálfskoðun og hina eilífu endurkomu til listalífsins á Akureyri.

Freyja Reynisdóttir er fædd 1989, sjálftitlaður Akureyringur frá árinu 2002 og útskrifuð úr myndlistarnámi 2014. Hún hefur unnið og haldið sýningar á Íslandi, Spáni, í Þýskalandi, Danmörku og Bandaríkjunum. Hún er einn af stofnendum listarýmisins Kaktus á Akureyri og hefur ásamt fleiri listamönnum staðið fyrir tilraunaverkefnum eins og listasmiðjunni Rót, tónlistarhátíðinni Ymur og mannfræðismiðjunni Núll.

Þetta er hundraðasti Þriðjudagsfyrirlesturinn sem haldinn er í Listasafninu og jafnframt sá næstsíðasti á þessu ári. Þann síðasta heldur Matt Armstrong, myndlistarmaður, næstkomandi þriðjudag 29. október. Fyrirlestraröðin hefst á nýjan leik í janúar og er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Gilfélagsins, Verkmenntaskólans á Akureyri, Myndlistarfélagsins og Háskólans á Akureyri.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó