Þrír hlutir sem Eliza Reid elskar við Akureyri

Þrír hlutir sem Eliza Reid elskar við Akureyri

Eliza Reid, forsetafrú Íslands, hefur undanfarið notið veðurblíðunnar á Akureyri eins og svo margir aðrir. Eliza birti fallega mynd úr bænum á Instagram síðu sinni í gær og nefndi þrjá hluti sem hún elskar við Akureyri.

„1. Fjalla­sýn­in. 2. Sund­laug­in. 3. Hjarta­löguðu um­ferðarljós­in,“ skrifaði Eliza við myndina á Instagram sem sýnir einmitt alla þessa hluti. Í gær heimsótti hún meðal annars Hrísey.

Eliza hefur verið töluvert á Akureyri í sumar en hún flutti heiðursávarp við útskrift úr Vísindaskólanum í Háskólanum á Akureyri fyrr í sumar.

UMMÆLI

Sambíó