Origo Akureyri

Þrjú ný póstbox á Norðurlandi

Þrjú ný póstbox á Norðurlandi

Ný póstbox spretta upp um allt land. Í næsta mánuði verða þau orðin alls 100 talsinsen nýlega bættust við póstbox á Þórshöfn, Siglufirði og í Ólafsfirði. „Fólk kann vel að meta að geta sótt pakka og póstlagt í póstbox hvenær sem er, árið um kring,“ segir Ósk Heiða Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri viðskiptavina.

„Uppsetning hefur gengið vonum framar og við höldum áfram að finna nýja staði fyrir póstbox og koma þeim fyrir á stöðum þar sem þörfin er hvað mest. Við hvetjum alla til að prófa að nota póstbox. Þetta ein þægilegasta og hagkvæmasta leiðin til þess að sækja og senda sendingar í dag,“ segir Ósk Heiða.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó