Þröstur Leó Íslandsmeistari í júdó

Þröstur Leó Íslandsmeistari í júdó

Þröstur Leó Sigurðsson úr KA gerði sér lítið fyrir og varð Íslandsmeistari í flokki undir 15 ára um helgina. Þetta kemur fram á heimasíðu KA.

Þar segir að Þröstur hafi æft af kappi í vetur og sigrað allar sínar viðureignir á Ippon, Íslandsmeistaramótinu í júdó 2024. KA fór með tíu manna keppnishóp á Íslandsmótið og náði hópurinn frábærum árangri undir stjórn þjálfara þeirra Gylfa Rúnars Eddusonar og Hannesar Snævars Sigmundssonar:

Þröstur Leó Sigurðsson 1. sæti
Gísli Valberg Jóhannsson 2. sæti
Valur Fannar Eiríksson 2. sæti
Dagmar Steinþórsdóttir 2. sæti
Jóhanna Heiðrún Ágústsdóttir 3. sæti
Bjarkan Kató Ómarsson 3. sæti
Anton Smári Georgsson 3. sæti
Jón Ari Skúlason 3. sæti
Sigtryggur K. Kjartansson 4. sæti
Samir Ómar Jónsson 3. sæti (í U18 og U21)

Mynd: ka.is

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó