Þyrnirós í Hofi

Þyrnirós verður flutt á jólatónleikum Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands í ár. Þetta er í annað árið í röð sem Akureyringum er boðið upp á sinfóníska ballettsýningu í Hofi en í fyrra var Hnotubrjóturinn fluttur eftirminnilega. St. Petersburg Festival Ballett mun flytja Þyrnirós í Hofi ásamt Sinfóníhljómsveitinni við tónlist Pyotr Ilyich Tchaikovsky.

Koma rússneska ballettsins til Akureyrar er gerð möguleg með menningarbrú Hofs og Hörpu sem reist var í september 2015. Markmið hennar er að auka tækifæri listamanna til að sýna list sína fyrir sunnan og norðan og fjölga viðburðum  á vegum menningarhúsanna. Þyrnirós verður sýnd í Hörpu í samstarfi við Sinfónúhljómsveit Íslands.

Þegar ballettinn Þyrnirós var fyrst fluttur á sviði í St. Petersburg árið 1890 voru undirtektirnar fremur dræmar. Rússneskir áhorfendur höfðu vanist því að formföst og einföld tónlist hljómaði undir ballettum  en það átti svo sannarlega ekki við um tóna Tchaikovskys. Hins vegar hafði litrík tónlistin áhrif á mikilmenni á borð við Stravinsky, Balanche og Pavlova sem allir höfðu verkið í hávegum. Fjölmargir listamenn hafa tekið verkið upp á sína arma síðan og Þyrnirós er talin vera einn stórkostlegasti ballett allra tíma. Í verkinu er farið með áhorfendur inn í töfrum gæddan heim prinsessa, álfadísa, töfra og álaga.

St. Petersburg Festival Ballet var stofnaður til að endurspegla bestu hefðir og anda Pétursborgarballettsins í sýningarferðum um allan heim. Glæsileiki, þokki og léttleiki einkennir Hátíðarballett Pétursborgar enda hafa aðaldansararnirunnið til fjölda alþjóðlegra verðlauna.

Tónskáld: Pyotr Ilyich Tchaikovsky

Hljómsveitarstjóri: Vadim Nikitin

Danshöfundur: Marius Petipa

Meðhöfundar: Frederick Ashton, Anthony Dowell og Christopher Wheeldon


UMMÆLI

Sambíó