Tíðari ferðir til Grímseyjar

Grímsey

Í sumar verður siglt til Grímseyjar alla daga vikunnar nema fimmtudaga og laugardaga. Ferðum ferjunnar Sæfara til og frá Grímsey verður fjölgað um tvær á viku. Ferðafólk sem kemur til eyjarinnar með ferjunni hefur því þann möguleika að dvelja í sólarhring á eyjunni.

Einnig er möguleiki að fara dagsferð í eyjuna, koma á hádegi og eytt þar fimm klukkustundum á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum

Í vetraráætlun ferjunnar stansar hún aðeins skamma stund í Grímsey en þó hefur ferðum hennar frá Grímsey á föstudögum verið seinkað til kl. 16, þannig að ferðafólk getur stansað þar við heimsskautsbauginn í fjórar klukkustundir.

„Þetta eru mjög ánægjulegar fréttir fyrir Grímsey og Grímseyinga, enda hefur ferjan oft verið meira og minna full flesta daga yfir sumarið. Núna er hægt að veita bæði Grímseyingum og ferðamönnum betri þjónustu, enda er mikill áhugi á Grímsey sem áfangastað,“ segir Helga Íris Ingólfsdóttir verkefnastjóri „Brothættra byggða“ fyrir Hrísey og Grímsey í samtali á Akureyri.is.

 

UMMÆLI

Sambíó